HomeBónus deildinBónus deild kvennaGengur í raðir Ármanns

Gengur í raðir Ármanns

Ármann hefur samið við bosnísku landsliðskonuna Milicu Sirovina um að leika með liðinu í Bónusdeild kvenna á komandi tímabili. Milica, sem er fædd árið 2004 og er 179 sentímetrar á hæð, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst stöður bakvarðar og vængmanns. Hún kemur til félagsins frá ŽKK Brod na Savi þar sem hún varð króatískur meistari á nýliðnum vetri og skilaði 9,5 stigum, 7,5 fráköstum og 2,7 stolnum boltum að meðaltali í leik.

Þrátt fyrir ungan aldur býr Milica yfir dýrmætri reynslu en hún lék með U18 ára landsliði Bosníu á EM 2022 og hefur síðan verið valin í A-landslið þjóðarinnar. Hjá Ármanni ríkir mikil ánægja með komu hennar, en auk hæfileika á sóknarhelmingnum er hún þekkt fyrir mikla vinnusemi, baráttu og sterka frákastagetu sem á eftir að styrkja liðið í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -