Jón Axel Guðmundsson og Burgos lutu í lægra haldi gegn Girona í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 77-71.
Á tæpum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel sex stigum og tveimur stoðsendingum, en hann lék næst mest allra leikmanna Burgos í leiknum.
Eftir leikinn eru Jón Axel og nýliðar Burgos í 17. sæti deildarinnar með 18% sigurhlutfall.




