HomeNeðri deildir1. deild karlaGeir tekur við kvennaliðinu og karlaliðsþjálfararnir áfram á Selfossi

Geir tekur við kvennaliðinu og karlaliðsþjálfararnir áfram á Selfossi

Stjórn Selfoss Körfu hefur tryggt áframhaldandi stöðugleika fyrir komandi keppnistímabil með því að ganga frá samningum við þjálfara meistaraflokka félagsins.

Þeir Bjarmi Skarphéðinsson og Eyþór Orri Árnason munu áfram stýra karlaliðinu í sameiningu eftir flotta frammistöðu á síðasta tímabili, þar sem liðið sýndi góða framvindu undir þeirra forystu. Þá eru fréttir af leikmannamálum sögðu væntanlegar á næstunni á miðlum félagsins.

Á sama tíma verða breytingar hjá meistaraflokki kvenna þar sem Geir Helgason tekur við sem aðalþjálfari liðsins. Geir er mörgum kunnur innan félagsins þar sem hann starfaði sem aðstoðarþjálfari kvennaliðsins á síðasta tímabili og býr því yfir dýrmætri þekkingu á leikmannahópnum. Forráðamenn félagsins lýsa yfir mikilli ánægju með þessar ráðningar og telja þjálfarana þrjá afar vel í stakk búna til að leiða liðin inn í spennandi vetur.

Fréttir
- Auglýsing -