HomeFréttirGatorade-leikmaður tuttugustu umferðar: Hafþór Ingi Gunnarsson

Gatorade-leikmaður tuttugustu umferðar: Hafþór Ingi Gunnarsson

Herra Borgarnes er Gatorade-leikmaður tuttugustu umferðar. Vissulega erum við hér á Karfan.is aðeins á eftir áætlun en Gatorade-leikmaður 21. umferðar verður tilkynntur von bráðar sem og fyrir 22. umferð en í 20. umferð er það sjálfur Hafþór Ingi Gunnarsson sem mætti með læti í Röstina og fær því klapp á bakið fyrir að koma tvíelfdur af tréverkinu hjá Inga Þór.
 
Í þessari umferð sýndu Hólmarar að þeir eru að gíra sig upp í úrslitakeppnina og skelltu stórliði Grindavíkur 89-101 í Röstinni. Hafþór setti þá 14 stig á 20 mínútum og gegn leikstjórnendalausum Grindvíkingum naut kappinn sín í varnarleiknum. Þá splæsti hann einnig í sjö stig fyrir Snæfell í tveimur sóknum, eitt fjögurra stiga ,,play" með þrist og víti og svo þrist strax í næstu sókn. 
 
Hafþór sagði við fréttaritara Karfan.is í Stykkishólmi að þetta væri í fyrsta sinn sem hann fengi viðurkenningu sem leikmaður og að Gatorade-ið myndi renna ljúft niður. Með fleiri svona innkomum er ekki loku fyrir það skotið að drykkjarföngunum geti fjölgað í ísskápnum hjá Haffa því með svona mottu eru honum allir vegir færir. 
 
Fréttir
- Auglýsing -