Sextán umferðum er lokið í Iceland Express deild karla og eftir stutt bikarhlé hefst keppni að nýju í deildinni næsta fimmtudag þegar þrír leikir fara fram. Í síðustu umferð gerðu nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn góða ferð í Ásgarð þar sem Matthew James Hairston leiddi Þórsara til sigurs. Hairston er Gatorade-leikmaður sextándu umferðar hér á Karfan.is.
Þór lagði Stjörnuna 80-88 í Ásgarði þar sem Hairston gerði 23 stig, tók 16 fráköst, gaf 3 stoðsendingar, stal 2 boltum og varði 7 skot og fékk fyrir vikið 41 í framlagseinkunn. Hairston hefur farið mikinn með Þórsurum síðan hann kom til landsins með 21,7 stig og 15,9 fráköst að meðaltali í leik. Þetta er í annað sinn sem Hairston er valinn Gatorade-leikmaðurinn en hann varð einnig fyrir valinu í elleftu umferð.
Cameron Echols og Jarryd Cole fengu einnig nokkur atkvæði í þessari umferð en Hairston beit þá af sér á endanum.
Þórsarar bíður ærinn starfi því næsta föstudag fá þeir nýkrýnda bikarmeistara Keflavíkur í heimsókn í Þorlákshöfn.



