Haukar hafa bitið verulega frá sér í síðustu tveimur leikjum, þeir eiga ekki annarra kosta völ ef þeir ætla að halda sæti sínu á meðal bestu liða landsins. Þrátt fyrir tvo sterka sigra í síðustu leikjum eru Haukar enn í fallsæti en Emil Barja hefur stigið upp svo um munar í liði Hauka og er Gatorade-leikmaður fimmtándu umferðar fyrir frammistöðu sína gegn Keflavík.
Í framlengdri spennuviðureign fór Emil á kostum á báðum endum vallarins, Emil gerði 23 stig í leiknum, tók 5 fráköst og var með 2 stoðsendingar og fékk 27 í framlag fyrir vikið. Þá var nýtingin ekki heldur til vansa, 3 af 3 í teignum, 4 af 6 í þristum og 7 af 9 á vítalínunni.
Emil sagði í snörpu samtali við Karfan.is að sigurinn gegn Keflavík hefði gefið Haukaliðinu mikið og að sigurinn í gær gegn Fjölni hefði sett ennfrekari vind í seglinn og að Haukar stefni ótrauðir að því að halda sæti sínu í deildinni.



