Átján umferðum er nú lokið í Iceland Express deild karla og að henni lokinni hefur Karfan.is valið Magnús Þór Gunnarsson sem Gatorade-leikmann umferðarinnar. Magnús fór mikinn í framlengdum spennusigri Keflavíkur í síðustu viku þegar Ingi Þór Steinþórsson mætti með kappana sína úr Stykkishólmi í Toyota-höllina.
Magnús setti 35 stig á Snæfell í leiknum, 8 af 13 í þristum litu dagsins ljós hjá fallbyssunni og þá var hann einnig með 6 fráköst og 3 stoðsendingar. Sigurinn skilaði Keflavík í 4. sæti deildarinnar með 24 stig. Þetta er í annað sinn sem Magnús er útnefndur Gatorade-leikmaður umferðarinnar en hann hlaut nafnbótina einnig í þrettándu umferð.



