spot_img
HomeFréttirGarnett: Kemur til með að sitja í mér

Garnett: Kemur til með að sitja í mér

01:19
{mosimage}

Framherji Boston Celtics, Kevin Garnett, viðurkenndi eftir leik 5 að hann spilaði virkilega illa eftir að Boston tapaði fyrir Lakers í fyrri nótt.

Garnett sagði að leikur hans hafi verið hreint út sagt rusl og að hann gæti gert miklu betur og myndi gera það þegar liðin mætast aðra nótt.

„Þetta kemur til með að sitja í mér” sagði Garnett í viðtali vestanhafs eftir leikinn. Hann var einnig mjög sár með að setja ekki vítaskotin sín niður og vildi meina að ef hann fengi tækifæri til að vera aftur í stöðu þar sem hann verður að setja niður vítin sín þá mun hann hafa sjálfsöryggið til að setja þau niður.

Nú er bara að sjá hvort Kevin Garnett standi við stóru orðin og klári dæmið fyrir Boston þegar liðin mætast í leik 6.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -