spot_img
HomeFréttirGarðbæingar þétta teiginn

Garðbæingar þétta teiginn

 
Stjarnan hefur fengið við evrópska leikmanninn Renato Lindmets á reynslu til sín með von um að geta gert samning við leikamanninn lítist forráðamönnum deildarinnar svo á. Lindmets er framherji og mun aðstoða Fannar Helgason í Stjörnuteignum en skammt er síðan Birgir Björn Pétursson ákvað að leika ekki meira með Stjörnunni þetta tímabilið.
Lindmets hefur m.a. komið við sögu í hinni sterku Baltic Basketball League þar sem hann var með 8,9 stig og 5,9 fráköst að meðaltali í leik. Lindmets var í Elms College í NCAA III og er einn stigahæsti leikmaður skólans frá upphafi en hefur aðallega getið sér orð sem sterkur varnarmaður.
 
Lindmets er ekki kominn til landsins en vonast er til að hann geti verið með gegn KR á fimmtudagskvöldið þegar Iceland Express deild karla hefur göngu sína á ný.
 
Fréttir
- Auglýsing -