Við höfum einstaklega gaman af því að gramsa, skoða gamlar myndir og forvitnast um þær. Upp úr gamla myndabankanum komu þessar þrjár myndir í dag en þær eru teknar 2006 á sumaræfingum í Ljónagryfjunni þar sem atvinnumaðurinn Logi Gunnarsson, þá 25 ára gamall, miðlaði af reynslu sinni til ungviðsins.
Þetta sumar var Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga og nýbúinn að gera græna að Íslandsmeisturum eftir sigur á Skallagrím í úrslitarimmunni. Einar stýrði Njarðvík einnig árið eftir þar sem grænir lentu í öðru sæti eftir úrslit gegn KR. Njarðvík lék einnig í Euro Cup Challenge það tímabil.
Þarna var Logi Gunnarsson nýkominn heim frá Bayeruth í Þýskalandi þar sem hann lék sem atvinnumaður og samdi svo við Njarðvíkinga um sumarið. Ekki gekk það eftir að hann léki með uppeldisfélaginu á komandi tímabili því hann samdi skömmu síðar við Topo í Finnlandi.
Á efstu mynd fréttarinnar eru eftirtaldir á þessari tilteknu sumaræfingu þar sem myndirnar voru teknar. Þarna kennir ýmissa grasa og má m.a. sjá þarna vinstra megin við Elvar Má Friðriksson hann Arnór Ingva Traustason landsliðsmann í knattspyrnu.
Aftari röð frá vinstri: Logi Gunnarsson, Einar Árni Jóhannsson, Róbert Tóbíasson, Hilmar Hafsteinsson, Andri Þorsteinsson, Elías Kristjánsson, Hjörtur Hrafn Einarsson, Birgir Björn Pétursson, Alfreð Elíasson og Styrmir Gauti Fjeldsted.
Miðröð: Heiða Valdimarsdóttir, Dagmar Traustadóttir, Hanna Valdimarsdóttir, Ólafur Helgi Jónsson, Rúnar Ingi Erlingsson og Oddur Birnir Pétursson.
Neðsta röð frá vinstri: Arnór Ingvi Traustason – Elvar Már Friðriksson, Óli Ragnar Alexandrsson, Ásgeir Nikulásson og Maciek Stanislav Baginski.
(Þó „Nat-vélina“ vanti á hópmyndina má sjá hann hér í stúkunni skarta öflugu He-Man hári. Birgir Björn Pétursson leikmaður Muenster í Þýskalandi fylgist grannt með þjálfurunum sem og flugumferðarstjórinn og leikmaður Breiðabliks, Rúnar Ingi Erlingsson).
(25 ára gamall Logi Gunnarsson að miðla af reynslu sinni sumarið 2006 í Ljónagryfjunni)
*Við hvetjum lesendur til að senda okkur gamlar myndir úr boltanum til birtingar – [email protected]