Íslenska karlalandsliðið tekur á móti feiknasterku liði Tyrklands í Laugardalshöll á morgun klukkan 19:30 í undankeppni HM 2027. Leikurinn er seinni viðureign liðsins í þessum fyrsta landsliðsglugga keppninnar eftir leikinn gegn Serbíu í Belgrad fyrir helgi.
Karfan hitti Baldur Þór Ragnarsson, aðstoðarþjálfara landsliðsins, á æfingu liðsins í dag. Í viðtalinu fór Baldur yfir glæsilega frammistöðu íslenska liðsins ytra gegn Serbíu, möguleika liðsins gegn ósigruðum Tyrkjum og hversu miklu máli það skiptir að fá þéttan og góðan stuðning í stúkuna í Laugardalshöll á morgun.
Viðtalið við Baldur má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




