Grindavík jafnaði í kvöld metin 1-1 í átta liða úrslitum gegn Njarðvík í Bónusdeild karla. Lokatölur í IceMar-Höllinni 84-86 þar sem Njarðvíkingar áttu lokaskot leiksins til að koma leiknum í framlengingu en gestirnir úr Grindavík sluppu með skrekkinn þar sem skot frá Sven og Veigari dönsuðu af hringnum.
Karfan spjallaði við Jóhann Ólafsson þjálfara Grindavíkur eftir leik í IceMar höllinni.




