Afturelding hélt áfram góðu gengi sínu í 2. deild karla í dag með glæsilegum heimasigri á reynslumiklu liði KR b í Myntkaupahöllinni að Varmá, 95–88.
Afturelding nýtti heimaleikinn í dag til að leggja góðu málefni lið í tilefni af bleikum október og árlegu árvekniátaki gegn brjóstakrabbameini. Félagið stóð fyrir sölu á Bleiku slaufunni í stúkunni að Varmá og tóku stuðningsmenn afar vel í framtakið, en salan gekk vonum framar og skapaði hlýjan og fallegan samstöðublæ á leiknum.

Leikurinn var í járnum frá upphafi til enda en heimamenn náðu að halda naumri forystu í hálfleik, 43–41. Mosfellingar náðu nokkrum sinnum tíu stiga forskoti en gömlu kempurnar í KR b hleyptu þeim aldrei langt fram úr sér.
Þrátt fyrir mikla reynslu andstæðinganna héldu ungu strákarnir í Aftureldingu ró sinni á ögurstundu og knúðu fram verðskuldaðan sjö stiga sigur í mikilli stemningu. Alexander Jón Finnsson fór fyrir liði Aftureldingar og skoraði heil 30 stig og Ólafur Snær Eyjólfsson fylgdi fast á eftir með 23 stig. Hjá KR b voru Pálmi Freyr Sigtryggsson og Jamil Abiad stigahæstir með 19 stig hvor.

Í öðrum leik dagsins í 2. deild sótti Reynir S. níu stiga útisigur á Reykdæli, 76–67.




