Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tekur nú þátt í sinni fyrstu Evrópukeppni síðan haustið 2009 þegar íslenska liðið spilaði seinni hluta riðils síns í B-deild Evrópumótsins. Hópurinn heldur út til Ungverjalands nú í dag.
Undankeppni Evrópumótsins 2017 er framundan og fyrsti leikur íslensku stelpnanna í E-riðlinum er á móti Ungverjalandi í Miskolc í austurhluta landsins.
Lokaleikur íslenska kvennalandsliðsins í EM 2009 var á móti Svartfjallalandi í Smáranum 29. ágúst 2009. Þegar stelpurnar spila sinn fyrsta leik í þessari Evrópukeppni verða liðin sex ár, tveir mánuðir og 23 dagar frá síðasta Evrópuleik.
Samtals munu því líða 2275 dagar á milli Evrópuleikja hjá íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta. Þetta verður því langþráð stund þegar stelpurnar hlaupa út á gólfið í Miskolc á laugardaginn kemur.
Svartfjallaland vann 77:62 sigur á íslenska liðinu í Smáranum í lok ágúst 2009 og en þetta lið Svartfjallalands vann sér sæti í A-deildinni þetta haust og náði síðan sjötta sætinu á fyrsta Evrópumóti sínu 2011.
Þrír leikmenn íslenska liðsins í dag tóku þátt í þessum síðasta leik fyrir rúmum sex árum en það eru þær Helena Sverrisdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir.
Íslenska kvennalandsliðið er alls búið að spila 16 leiki í Evrópukeppni en þá eru ekki taldir með leikir í Evrópukeppni smáþjóða eða Promotion Cup eins og sú keppni hét áður fyrr.
Af þessum sextán leikjum hafa fjórir endaði með sigri (3 á móti Írlandi og 1 á móti Sviss) en tólf þeirra hafa tapast.
Síðasti sigurleikur íslenska kvennalandsliðsins í Evrópukeppni kom á móti Írum á Ásvöllum 26. ágúst 2009.
Stig íslenska landsliðsins á móti Svartfjallalandi 29. ágúst 2009:
Helena Sverrisdóttir 23
Birna Valgarðsdóttir 18
Kristrún Sigurjónsdóttir 8
Signý Hermannsdóttir 6
Hildur Sigurðardóttir 3
Hafrún Hálfdánardóttir 2
Guðrún Ósk Ámundadóttir 2
Frétt af www.kki.is
Mynd/ [email protected] – Systrapörin Helena og Guðbjörg og Gunnhildur og Berglind.



