Finnski körfuboltamaðurinn Osku Heinonen hefur tilkynnt að hann sé hættur í atvinnumennsku eftir langan og farsælan feril.
Heinonen, sem er 33 ára gamall og 194 sentímetrar á hæð, hóf meistaraflokksferil sinn árið 2009 og varð meðal annars finnskur meistari með Tampereen Pyrintö árið 2014. Hann lék stærstan hluta ferils síns í heimalandinu en reyndi einnig fyrir sér á Ítalíu.
Íslenskir körfuboltaáhugamenn muna vel eftir kappanum frá tímabilinu 2023–2024 þegar hann lék með Haukum í úrvalsdeild karla, en þar lét hann strax til síns taka með mikilli skotgleði og skoraði til að mynda 29 stig og níu þrista í eftirminnilegum sigri gegn Hamri. Eftir dvölina á Íslandi lék hann á Ítalíu og lauk ferlinum hjá Helsinki Seagulls í heimalandinu.




