HomeBónus deildinBónus deild kvennaFyrirliðinn áfram í Val

Fyrirliðinn áfram í Val

Dagbjört Dögg Karlsdóttir, fyrirliði Vals, hefur endurnýjað samning sinn við Hlíðarendafélagið og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Dagbjört hefur um árabil verið í hópi lykilleikmanna Vals og ríkir mikil ánægja innan deildarinnar með að hafa tryggt krafta hennar áfram.

Í tilkynningu frá Val kemur fram að Dagbjört hafi verið gríðarlega mikilvægur hlekkur í uppbyggingu kvennaliðsins undanfarin ár, enda öflugur leiðtogi jafnt innan sem utan vallar.

Fréttir
- Auglýsing -