HomeBónus deildinBónus deild karlaFyrirliðinn áfram hjá Sindra í Bónusdeildinni

Fyrirliðinn áfram hjá Sindra í Bónusdeildinni

Gísli Hallsson mun áfram leiða meistaraflokk Sindra sem fyrirliði þegar liðið tekur sæti sitt í Bónusdeild karla í haust.

Gísli er uppalinn hjá Hornafjarðarfélaginu og hefur um árabil verið einn af helstu burðarásunum í starfi þess, bæði innan vallar sem utan.

Hjá Sindra er lögð áhersla á að leiðtogahæfni Gísla, metnaður og vinnuframlag hafi gert hann að frábærri fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins. Það er mikilvægt fyrir Sindramenn að hafa reyndan og tryggan leiðtoga í sínum röðum þegar lið stígur á stærsta svið íslensks körfubolta á komandi keppnistímabili.

Fréttir
- Auglýsing -