spot_img
HomeFréttirFSu tekur á móti Ármanni/Þrótti í kvöld

FSu tekur á móti Ármanni/Þrótti í kvöld

13:26

{mosimage}

Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld þegar FSu tekur á móti Ármanni/Þrótti klukkan 19:15 í Iðu. Þetta er annar leikur FSu í vetur en þeir sigruðu nágranna sína í Þór Þ á útivelli á föstudag. Ármann/Þróttur hefur enn ekki leikið í deildinni í vetur.

 

Nokkur meiðsli hafa verið í herbúðum FSu undanfarið og verða þeir Árni Ragnarsson og Vésteinn Sverrisson ekki með í kvöld. 

Ármann/Þróttur fékk í gær liðsstyrk frá ÍR þegar Ásgeir Hlöðversson skipti yfir. 

Það má því reikna með hörkuleik í kvöld. 

[email protected] 

Mynd: www.basket.is

Fréttir
- Auglýsing -