,,Þetta hafðist en hafðist ekki," sagði Friðrik Pétur Ragnarsson í gærkvöldi þegar Karfan.is náði tali af honum eftir tapleik Njarðvíkinga í Skagafirði. Vissulega var Friðrik ánægður með erkifjendurna úr Keflavík sem björguðu sæti Njarðvíkinga í úrslitakeppninni með sigri á Fjölni.
,,Markmiði vetrarins er náð, það má segja það en við hefðum vissulega viljað enda deildarkeppnina á því að vinna síðasta leikinn en að komast í úrslitakeppnina er nokkuð vel að sér vikið," sagði Friðrik en honum og Njarðvíkingum var spáð falli úr deildinni í spá KKÍ fyrir tímabilið.
,,Eðlilega var okkur spáð falli enda með ungt lið en strákarnir hafa staðið sig vel í vetur og við erum stoltir af þessu og í úrslitakeppninni mætum við Grindavík og það verður ekki í fyrsta skiptið í vetur sem við erum afskrifaðir. Þeir sem sáu leikinn í Njarðvík sáu ,,lódað" atvinnumannalið spila á móti drengja- og unglingaflokki svo við mætum pressulausir og lítum á þetta verkefni sem innlegg í reynslubankann. Ef allt gengur upp þá stríðum við þeim eitthvað," sagði Friðrik en fátt kom honum á óvart í úrslitum lokaumferðarinnar.
,,Það var mikið af spennandi leikjum og öll liðin ofar í töflunni unnu sína leiki en þetta voru allt hörkuleikir og því spennandi að sjá hvernig úrslitakeppnin verður. Það er stutt á milli feigs og ófeigs í þessu enda finnst mér þetta Haukalið sem féll vera eitt besta liðið sem hefur fallið. Með eðlilegu árferði hefðu þeir ekki átt að fara niður og að Valsmönnum frátöldum var deildin jöfn og lið reytandi stig hvert af öðru," sagði Friðrik sem yrði hissa ef Grindavík færi ekki alla leið þetta árið.
,,Heimavallarréttur er langt frá því eitthvað sem gerir lið hólpin í úrslitakeppninni, í fljótu bragði þá virka Grindvíkingar sem lang, lang sterkasta liðið á mig og ég yrði gríðarlega hissa ef þeir færu ekki alla leið enda annað óásættanlegt frá þeirra bæjardyrum séð. Byrjunarliðið er skipað ofurmönnum í líkamlegum vexti og aldrei hafa meiri þungavigtarskiptingar átt sér stað þegar J´Nathan Bullock fer af velli og inná kemur Ryan Pettinella."




