Friðrik Ingi Rúnarsson var í samtali við Hjört Hjartarson á X-inu í morgun og kvað stemmninguna í liðinu vera bísna góð þrátt fyrir erfið töp. Hann talar einnig um að körfuknattleiks unnendur ættu að vera ánægð með að fá að taka þátt í þessu móti og gegn svo sterkum þjóðum en vissuelga væri þetta ekki óska leikjaplan. "Liðið er búið að vera að spila vel í síðustu leikjum en vissulega byrjað að draga af mönnum eftir strangt prógram í mánuðinum." sagði Friðrik Ingi. Hægt er að hlusta á viðtalið með því að smella hér.





