spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaFrestað á Ísafirði, gestirnir mættir en dómararnir veðurtepptir - Einnig frestað á...

Frestað á Ísafirði, gestirnir mættir en dómararnir veðurtepptir – Einnig frestað á Sauðárkróki

Leik Vestra og ÍR í 1. deild kvenna sem fram átti að fara á Ísafirði í dag kl 13:00 hefur verið frestað til morguns.

Lið ÍR er mætt til Ísafjarðar en dómarar leiksins sitja fastir í Súðavík þar sem Súðavíkurhlíðin er lokuð vegna snjóflóðahættu.

Stefnt er á að leikurinn verði spilaður um hádegisbil á morgun, sunnudag.

Þá hefur leik Tindastóls og Njarðvíkur sem fara átti fram í Síkinu á Sauðárkróki einnig verið frestað til morguns vegna veðurs.

Mynd: Anna Ingimars / Vestri

Fréttir
- Auglýsing -