HomeBónus deildinBónus deild karlaFramtíðin björt í Keflavík – Þrír ungir semja til tveggja ára

Framtíðin björt í Keflavík – Þrír ungir semja til tveggja ára

Keflavíkur hefur gengið frá tveggja ára samningum við þrjá unga og bráðefnilega leikmenn, þá Davíð Breka Antonsson, Sigurð Karl Guðnason og Arnar Frey Elvarsson.

Allir eru þeir fæddir árið 2010 og hafa látið mikið að sér kveða í yngri flokkum félagsins. Strákarnir hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir hæfileika sína og eru þeir allir hluti af U16 landsliði Íslands sem er á leið í verkefni nú í sumar.

Það er óhætt að segja að framtíðin sé björt í Bítlabænum og verður virkilega spennandi að fylgjast með áframhaldandi vexti og þróun þessara ungu kappa á næstu árum hjá Keflavík.

Fréttir
- Auglýsing -