Framlengir við KR

Friðrik Anton Jónsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild KR til næstu tveggja ára og mun því leika í Vesturbænum út tímabilið 2027-2028. Friðrik, sem er 24 ára gamall og gekk til liðs við KR fyrir rúmum þremur árum, átti mjög gott tímabil síðastliðinn vetur þar sem hann skilaði 10 stigum og 4,8 fráköstum að meðaltali í leik. Hann er í grunninn uppalinn hjá Breiðabliki en hefur á ferlinum einnig leikið með Álftanesi og Stjörnunni.

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari meistaraflokks karla hjá KR, fagnar áframhaldandi veru Friðriks í Vesturbænum og segir hann vera orðinn stóran og mikilvægan hluta af liðinu. Friðrik sjálfur lýsir yfir mikilli ánægju með að vera áfram og segist spenntur fyrir komandi tímabili, enda sé skemmtilegur kjarni leikmanna til staðar í svörtu og hvítu.

Fréttir
- Auglýsing -