Framlengir við ÍA

ÍA hefur framlengt samning sinn við hinn unga og efnilega Nökkva Snorrason út næstu leiktíð.

Nökkvi, sem er fæddur árið 2008, er uppalinn hjá félaginu á Akranesi. Hann fetar þar með í fótspor föður síns, Snorra, sem lék einnig með meistaraflokki ÍA á sínum tíma við góðan orðstír. Skagamenn fagna því að halda þessum unga heimamanni í sínum röðum fyrir komandi verkefni í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -