Framlengir samninginn

Ísak Júlíus Perdue hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn. Hann mun því leika með liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili. Mikil ánægja er samkvæmt tilkynningu innan félagsins með að halda Ísaki, en undirbúningur fyrir næsta vetur stendur nú sem hæst í Höfninni.

Fréttir
- Auglýsing -