spot_img
HomeFréttirFramleiðir Laugalækjarskóli landsliðsmenn?

Framleiðir Laugalækjarskóli landsliðsmenn?

Á dögunum fengum við sendar athyglisverðar upplýsingar en þar var á ferðinni Björn M. Björgvinsson skólastjóri í Laugalækjaskóla. Hann benti okkur á skemmtilega staðreynd en hún er sú að af þeim 12 leikmönnum sem skipa íslenska A-landsliðið í dag hafa fimm þeirra stundað nám í Laugalækjarskóla á einhverjum tíma. Tveir þeirra eru byrjunarliðsmenn.
Leikmennirnir sem um ræðir eru:
– Jón Arnór Stefánsson
– Helgi Már Magnússon
– Hlynur Bæringsson
– Finnur Atli Magnússon
– Brynjar Þór Björnsson
 
Við þökkum Birni skólastjóra fyrir þessa skemmtilegu ábendingu en þess má geta að skólinn er fremur lítill fyrir skóla sem staðsettur er í höfuðborginni því hann telur um aðeins 280 nemendur. Spurning hvort ungir iðkendur stökkvi nú til og sækji um pláss í Laugalækjaskóla?
 
  
Fréttir
- Auglýsing -