spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaFramlagshæstur í 12 stiga tapi

Framlagshæstur í 12 stiga tapi

Styrmir Snær Þrastarson og Zamora máttu þola tap gegn Leyma Coruna í Primera FEB deildinni á Spáni um helgina, 69-81.

Styrmir Snær lék 25 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 14 stigum, 4 fráköstum og stoðsendingu, en hann var framlagshæstur í liði Zamora í leiknum.

Zamora eru eftir helgina í 8. sæti deildarinnar með fimm sigra og sex töp það sem af er deildarkeppni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -