Njarðvíkingar hafa fengið til liðs við sig tvo erlenda leikmenn, Jonathan Moore og Nenad Tomasevic. Moore er 202 sm. hár framherji og Nenad er 193 sm. hár bakvörður. Einar Árni Jóhannsson annar tveggja þjálfara Njarðvíkurliðsins sagði í samtali við Karfan.is í kvöld að leikmenn, þjálfarar og stjórn væru samstíga í sínum ákvörðunum og að félagið ætlaði sér að grafa sig upp úr holinni sem það væri nú statt í.
Moore er bandarískur og þýskur með þýskt vegabréf en Nenad er frá Serbíu. Moore lék með Bremerhaven í Þýskalandi þar sem m.a. Ólafur Ólafsson og Jeb Ivey hafa komið við sögu. Þar áður lék hann með Gothia Basket í Svíþjóð. Nenad kemur frá Vojvodina Novi Sad úr efstu deildinni í Serbíu.
,,Staðan sem við erum í er snúin, við erum í þeirri stöðu að það eru tveir leikmenn sem eru dottnir út á stuttum tíma og annar þeirra er næststigahæsti leikmaður liðsins sem og einn allra besti varnarmaðurinn í deildinni,” sagði Einar Árni og átti þar við Guðmund Jónsson. Guðmundur meiddist á ökkla í leik gegn ÍR á dögunum og verður í gifsi fram að mánaðarmótum.
,,Við verðum glaðir ef við fáum að njóta krafta Guðmundar aftur á tímabilinu,” sagði Einar og því ekki ljóst hvort Guðmundur fari aftur í búning þessa leiktíðina.
,,Félagið ætlar sér upp úr þeirri holu sem það er í og við fáum hér inn tvo leikmenn sem hafa ýmislegt til brunns að bera og ná vonandi að þétta hópinn og auka samkeppnina. Við erum að horfa til þess að þetta séu tveir leikmenn sem geti spilað hörku vörn,” sagði Einar en eru allir á eitt sáttir í Ljónagryfjunni?
,,Leikmenn, þjálfarar og stjórn eru samstíga í því að leggja allt sem þeir eiga í að koma félaginu á betri stað í töflunni og vonandi eigum við eftir að njóta góðs stuðnings frá okkar fólki í þeim átta leikjum sem eftir eru enda 16 dýrmæt stig í boði,” sagði Einar Árni en hann og Friðrik hafa nú stýrt Njarðvíkingum í tveimur deildarleikjum og eru enn á höttunum eftir sínum fyrsta sigri.
Nú hafa bæði lið Njarðvíkinga, karla- og kvennaliðið, á að skipa þremur erlendum leikmönnum með komu Moore og Nenad en um síðastliðna helgi bættist Julia Demirer við hópinn í kvennaliðinu.
Mynd/ Einar Árni Jóhannsson segir Njarðvíkinga samstíga í því að koma liðinu á betri stað í deildinni.




