HomeFréttirFrábært að fá þessa leiki

Frábært að fá þessa leiki

A-landslið kvenna í körfuknattleik æfir nú af krafti áður en haldið verður til Lissabon þar sem liðið leikur tvo æfingaleiki gegn Portúgal. Leikirnir eru mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir fyrsta keppnisgluggann í for-undankeppni EuroBasket 2029 í nóvember. Pekka Salminen, sem tók við sem landsliðsþjálfari á síðasta ári, leggur mikla áherslu á hversu dýrmætir þessir æfingaleikir eru fyrir liðið, enda hafi leikmenn spilað allt of fáa landsleiki saman þrátt fyrir að vera með reynslumikinn kjarna á bakinu.

Salminen segir frábært tækifæri felast í því að vera með stóran hóp úti í Portúgal. Þar fái ungir og efnilegir leikmenn, sem stóðu sig vel með yngri landsliðunum í sumar, dýrmæta reynslu við hlið eldri leikmanna, auk þess sem leikmenn úr bandaríska háskólaboltanum fá kærkomið tækifæri til að æfa og spila með liðinu áður en vetrarvertíðin hefst. Nánar er rætt við Pekka Salminen í viðtalinu í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -