Ungir körfuboltakappar úr 8. flokki gerðu gera góða hluti á dögunum þar sem lið Breiðabliks og Stjörnunnar sýndu styrk sinn í harðri keppni.
Breiðablik fór alla leið í úrslitaleik mótsins eftir harða baráttu. Í undanúrslitum mættu þeir nágrönnum sínum í Stjörnunni þar sem Blikar höfðu betur og tryggðu sér sæti í úrslitum. Þar mættu þeir sterku liði Södertälje frá Svíþjóð. Eftir spennandi leik máttu Blikar þola tap og enduðu því í öðru sæti, sem verður að teljast glæsilegur árangur.

Frammistaða leikmanna vakti verðskuldaða athygli en Birkir Logi Þrastarson, leikmaður Breiðabliks, var valinn í úrvalslið mótsins fyrir vasklega framgöngu sína á vellinum.
Stjarnan lét sitt eftir liggja en liðið endaði í 4. sæti mótsins eftir flotta spilamennsku. Garðbæingar áttu sömuleiðis fulltrúa í úrvalsliði mótsins, sem undirstrikar þann mikla efnivið sem býr í íslenskum körfubolta í þessum aldursflokki.
Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].




