Arndís Rut Matthíasdóttir mun leika í bandaríska háskólaboltanum á næsta tímabili en hún hefur gengið frá samningi við Simon Fraser University í Bresku Kólumbíu í Kanada.
Lið skólans, sem kallast Red Leafs, leikur í Great Northwest Athletic Conference innan annarrar deildar NCAA (D2).
Skólinn hefur ákveðna sérstöðu þar sem Simon Fraser University er eini háskólinn í Kanada sem á lið í NCAA-deildarkerfinu. Mikil eftirvænting ríkir vestra og heima á Íslandi að fylgjast með framgöngu Arndísar Rutar á þessum nýju slóðum.



