HomeBónus deildinBónus deild karlaFrá Hlíðarenda á Skagann

Frá Hlíðarenda á Skagann

ÍA hefur gert tveggja ára samning við Króatann Igor Marić, sem gengur til liðs við Skagamenn frá Val þar sem hann átti mjög gott tímabil, en hann hefur einnig leikið með Keflavík og ÍR hér á landi. Auk þess að spila með meistaraflokki ÍA mun Igor gegna hlutverki aðstoðarþjálfara liðsins og koma að þjálfun yngri flokka félagsins, sem er liður í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu körfuboltastarfsins á Akranesi á öllum stigum.

Birkir Guðjónsson, formaður ÍA, lýsti yfir mikilli ánægju með komu Igors og benti á að hann félli fullkomlega að framtíðarsýn og stefnu félagsins. Í tilkynningu frá ÍA segir Birkir að félagið hlakki mikið til að sjá Igor taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Akranesi og býður hann nýjan leikmann og þjálfara hjartanlega velkominn til starfa.

Fréttir
- Auglýsing -