spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaFrá Grindavík austur á Hérað

Frá Grindavík austur á Hérað

Höttur hefur samið við Jóhann Árna Ólafsson um að ganga inn í þjálfarateymi liðsins fyrir komandi leiktíð í Subway deild karla. Staðfestir Jóhann þetta í samtali við Körfuna fyrr í dag.

Jóhann kemur til Hattar frá Grindavík, þar sem hann var aðstoðarþjálfari á síðasta tímabili. Samkvænt honum og félaginu mun hann ganga í starf Einars Árna Jóhannssonar sem var annar aðalþjálfara liðsins með Viðari Erni Hafsteinssyni.

Fréttir
- Auglýsing -