Sigrún María Birgisdóttir hefur skrifað undir samning við Ellsworth Community College, sem er staðsettur í Iowa Falls í Iowa-fylki.
Lið skólans, The Panthers, spilar í Iowa Community College Athletic Conference í NJCAA D2-deildinni. Mikil eftirvænting ríkir samkvæmt tilkynningu Soccer and education með að fylgjast með Sigrúnu Maríu á þessum spennandi tímamótum og er henni óskað innilega til hamingju með þennan flotta áfanga á ferlinum vestanhafs.




