Breiðablik hefur samið við Eystein Bjarna Ævarsson fyrir næsta tímabil.
Eysteinn kemur með ríka reynslu í Smárann eftir að hafa leikið með Hetti, Keflavík, Stjörnunni og Álftanesi, en á síðustu leiktíð skilaði hann 10,6 stigum og 6,1 frákasti að meðaltali með Hetti.
Þetta er í þriðja sinn sem Eysteinn spilar undir stjórn Hrafns Kristjánssonar, en þeir unnu áður saman hjá Stjörnunni og Álftanesi. Hrafn fagnar komu Eysteins og segir hann öflugan leiðtoga sem muni styrkja liðið á báðum endum vallarins og miðla dýrmætri reynslu til ungu leikmannanna.




