HomeÚti í heimiEvrópaFrá Bayern Munich til Leverkusen

Frá Bayern Munich til Leverkusen

Ágúst Goði Kjartansson hefur gengið til liðs við þýska félagið Bayer Giants Leverkusen. Hinn 22 ára gamli leikstjórnandi skrifaði undir tveggja ára samning sem gildir til loka tímabilsins 2026/27. Ágúst flytur sig um set eftir eins árs dvöl hjá stórliðinu Bayern Munich.

Leverkusen er sigursælasta körfuboltalið Þýskalands í sögunni, en liðið má muna sinn fífil fegri og leikur nú neðar í deildarkerfinu. Mike Koch, fulltrúi félagsins, lýsir Ágústi sem gáfðum leikstjórnanda með frábæran leikskilning og góðar stoðsendingatölur sem muni stýra spili liðsins á komandi árum. Þá þekki hann þýska boltann vel og hafi látið að sér kveða með yngri landsliðum Íslands.

Fréttir
- Auglýsing -