HomeFréttirFlugstjórinn Rodney Alexander mættur til leiks

Flugstjórinn Rodney Alexander mættur til leiks

ÍR og Valur mættust í Hellinum í kvöld. Valsmenn höfðu að litlu að keppa, enda fallnir úr deildinni, en leikurinn skipti ÍR-inga hins vegar meira máli, enda er liðið í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni ásamt því að liðið á enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni.
 
ÍR-ingar hófu leikinn með látum og leiddu með 17 stigum eftir fyrsta leikhluta. Rodney "flight" Alexander, nýjasti liðsmaður Breiðhyltinga, bauð áhorfendum á sannkallaða flugsýningu með hverri glæsitroðslunni á fætur annarri í leikhlutanum. Sannarlega skemmtilegur leikmaður þar á ferð.
 
Valsmenn sóttu heldur betur í sig veðrið í næsta leikhluta og mættu grimmir til leiks eftir þrusuræðu Ágústs Björgvinssonar, þjálfara þeirra að fyrsta leikhluta loknum. Þeir söxuðu á forskot ÍR-inga jafnt og þétt og var þar Birgir Pétursson fremstur meðal jafningja. Drengurinn fór hreinlega hamförum í leikhlutanum og lék varnarmenn ÍR-inga oft grátt ásamt því að hrifsa þau fráköst sem í boði voru.
 
Í hálfleik var staðan 45-40, heimamönnum í vil.
 
Síðari hálfleikur hófst með áhlaupi ÍR-inga og náðu þeir fljótt aftur 15 stiga forskoti. Síðari hálfeikur einkenndist af mikilli hörku og baráttu beggja liða. Þrátt fyrir forskot ÍR-inga neituðu synir sr. Friðriks Friðrikssonar að gefast upp. Það var hins vegar Robert Jarvis sem dró vagninn fyrir Hellisbúana og hélt hann sóknarleik heimamanna uppi á sitt einsdæmi, sem ekki veitti af þar sem vörn þeirra virtist komin í helgarfrí á þessum tímapunkti.
 
Fátt var um fína drætti í síðasta fjórðungi þar sem ÍR-ingar höfðu leikinn í hendi sér allan tímann. Þó bitu Valsmenn frá sér síðustu tvær mínúturnar og minnkuðu muninn niður í sex stig en lengra komust þeir ekki. ÍR-ingar fóru með sigur af hólmi í miklum stigaleik. Lokatölur urðu 101-95.
 
Bestir í liði heimamanna voru áðurnefndir Robert Jarvis og Rodney Alexander en ásamt þeim lét Þorvaldur Hauksson mikið að sér kveða á báðum endum vallarins en var óheppinn að lenda í villuvandræðum í lok þriðja leikhluta.
 
Birgir Pétursson átti skínandi dag fyrir Valsmenn og spilaði eflaust sinn besta leik í vetur. Heilt yfir spilaði Valur góðan körfubolta og var barátta þeirra og leikgleði til mikillar fyrirmyndar, einkum með hliðsjón af stöðu þeirra í deildinni.
 
Umfjöllun/ SC og VF 
Fréttir
- Auglýsing -