Vesturbæingar fögnuðu sigri í Meistarakeppni KKÍ í kvöld eftir að hafa lagt Grindavík að velli, 106–79, í HS Orku-höllinni.
Eftir erfiða byrjun tóku KR-ingar öll völd á vellinum með mögnuðum kafla í öðrum leikhluta og tryggðu sér að lokum afar þægilegan stórsigur.
Rætt var við Jóhann Þór Ólafsson, þjálfara Grindavíkur, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




