spot_img
HomeFréttirFlorijan Jovan til liðs við KFÍ

Florijan Jovan til liðs við KFÍ

Florijan Jovanov hefur samið við KFÍ og mun spila með liðinu í vetur. Florijan er ekki ókunnugur herbúðum KFÍ enda lék hann síðast fyrir KFÍ fyrir um 4 árum síðan. 
 
Síðustu ár hefur hann spilað í næst efstu deild í Makedóníu við góðan orðstír og var í liði sem komst upp um deild á síðasta ári. Með þessari viðbót í KFÍ er liðið að verða full mannað fyrir átök tímabilsins þar sem stefnan er sett á að komast upp um deild og aftur í úrvalsdeildina, samkvæmt frétt KFÍ. Koma Florijan eykur breidd liðsins og eru bundnar vonir við að þessi blanda yngri leikmanna með leikmönnum sem þekkja til strákanna okkar muni skapa öfluga liðsheild sem skemmtilegt verði að horfa á í vetur.
Fréttir
- Auglýsing -