HomeFréttirFlestir telja að Egill verði áfram í Njarðvík

Flestir telja að Egill verði áfram í Njarðvík

18:30

{mosimage}

 

(Egill í leik með Njarðvíkingum gegn Snæfell) 

 

Nokkrar getgátur hafa verið uppi um það hvert miðherjinn stóri Egill Jónasson muni fara. Verður hann erlendis á næstu leiktíð, áfram í herbúðum Njarðvíkinga eða mun hann söðla um og leika með öðru félagsliði hér á Íslandi? Við skulum sjá hvað lesendur Karfan.is töldu að væri líklegast í stöðunni:

 

33,6% töldu að Egill yrði áfram í herbúðum Njarðvíkinga

18,5% töldu að Egill myndi fara í annað liði úti á landi

16,6% töldu að Egill færi í annað lið á Suðurnesjum

16,5% töldu að Egill færi í annað lið á höfuðborgarsvæðinu

14,7% töldu að Egill myndi fara í lið erlendis

 

Eins og sést þá telja flestir að Egill verði áfram í herbúðum Njarðvíkinga á næstu leiktíð en sjálfur hefur hann tjáð fjölmiðlum að hann ætti í viðræðum við fleiri félög en Njarðvíkinga. Hvað verður kemur væntanlega í ljós bráðlega.

 

Komnar eru inn tvær nýjar kannanir þar sem spurt er hvaða lið úr austur- og vesturströnd NBA deildarinnar muni komast í úrslitin.

Fréttir
- Auglýsing -