HomeBónus deildinBónus deild karlaFleiri efnilegir spreyta sig í Bandaríkjunum

Fleiri efnilegir spreyta sig í Bandaríkjunum

Valsmenn halda áfram að kynna unga leikmenn félagsins sem leika erlendis í vetur, en fjórir til viðbótar taka slaginn í bandaríska skólaboltanum á komandi leiktíð.

Stormur Traustason hefur sitt annað ár í Norður-Karólínu hjá The Burlington School, og Rún Sveinbjarnardóttir (15 ára) er sömuleiðis á sínu öðru ári hjá Princess Anne High School í Virginíu eftir sigursælan feril með Val og U16 ára landsliðinu.

Þá halda tveir ungir leikmenn saman til Stuart Hall í Virginíu: Gabriel K. Ágústsson (17 ára) og Arnór Bjarki Halldórsson (18 ára). Báðir eru þeir uppaldir Valsarar og Íslandsmeistarar sem hafa látið mikið að sér kveða í EYBL-Evrópukeppninni á undanförnum árum.

Hérna er færsla þeirra á Instagram

Fréttir
- Auglýsing -