Grindavík sigraði Tindastól, 101-98, í æsispenndi leik í 21. umferð Dominos deildar karla. Eftir leikinn er Grindavík því sem fyrr í 4. sæti deildarinnar á meðan að Tindastóll er 6 stigum fyrir ofan þá í 2.-3. sætinu. Eftir leiki kvöldsins er það ljóst að KR er deildarmeistari þetta árið, en þeir sigruðu Snæfell í Stykkishólmi á meðan að liðin í 2.-3. sæti, Tindastóll og Stjarnan, töpuðu bæði sínum leikjum.
Það voru heimamenn í Tindastól sem byrjuðu leik betur í Síkinu. Eftir fyrsta leikhluta leiddu þeir leikinn 32-24. Í öðrum leikhlutanum tóku gestirnir svo við sér, en þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 50-48 Tindastól í vil.
Í upphafi seinni hálfleiksins voru heimamenn svo aftur skrefinu á undan. Við lok þriðja leikhlutans leiddu þeir leikinn 75-70. Í fjórða og síðasta leikhlutanum var leikurinn svo áfram jafn og spennandi, en þá var það Grindavík sem var betri aðilinn. Fór svo að lokum að Grindavík sigraði leikinn á glæsilegri flautukörfu frá Degi Kár Jónssyni, 98-101.
Dagur Kár með SVAÐALEGAN game winning buzzer. Hékk í loftinu og negldi þristinum ofan í.
— Kjartan A Kjartanss. (@kjartansson4) March 5, 2017
Atkæðamestur heimamanna í leiknum var Antonio Hester með 29 stig og 9 fráköst á meðan að fyrir gestina var það Ólafur Ólafsson sem dróg vagninn með 33 stigum og 8 fráköstum.
Hér er hægt að horfa á leikinn




