HomeBónus deildinBónus deild kvennaFlautukarfa Dinkins setti sópinn á loft og Njarðvík í undanúrslit

Flautukarfa Dinkins setti sópinn á loft og Njarðvík í undanúrslit

Njarðvík tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Bónusdeildar kvenna með magnaðri flautukörfu í þriðju viðureign sinni gegn Tindastól í kvöld. Lokatölur 88-87 í IceMar-Höllinni og þegar allt útlit var fyrir að Tindastóll myndi minnka muninn í 2-1 í einvíginu þá setti Brittany Dinkins niður svakalegan flautuþrist og sendi Tindastól í sumarfrí. Sópurinn á loft 3-0.

Njarðvíkingar halda áfram og inn í undanúrsllit en það er óhætt að segja að Tindastóll hafi látið Njarðvík hafa vel fyrir hlutunum. Leikur 1 og leikur 3 hjá Tindastól í IceMar-Höllinni sýndi gæði liðsins og verður spennandi að fylgjast með framvindu liðsins á næstu árum.  

Að leiknum sjálfum þá hófu Njarðvíkingar leik kvöldsins með látum eða 14-0 og leit allt út fyrir að alger einstefna væri í uppsiglingu. Oceane Kounkou hrökk þá í gang hjá gestunum og setti fjóra af fimm þristum í fyrri hálfleik og vakti sínar konur af værum blundi. Stólarnir minnkuðu muninn í 26-19 sem var staðan að loknum fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta var meira jafnræði með liðunum og fór hann 19-19 og staðan því 45-38 fyrir Njarðvík í hálfleik.

Danielle Rodriguez var með 18 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar í hálfleik í liði Njarðvíkinga en Oceane með 12 hjá gestunum. Marta hin öfluga sem hefur verið með 28 stig að meðaltali í leik í vetur var aðeins með þrjú í fyrri hálfleik.

Megnið af þriðja leikhluta nýttu gestirnir í að saxa niður forskotið og náðu loks að jafna leikinn 54-54 þegar Oceane mætti með stemmningsþrist en hún setti tvo í leikhlutanum og var 6-8 þristum. Við þetta hófu Stólarnir sig til flugs og unnu leikhlutann 12-24 og leiddu því 57-62 fyrir fjórða leikhluta. Munaði þar miklu um að Roselis Silva fór að ógna og setja stig á tölfluna fyrir gestina.

Fjórði leikhluti var ævintýralegur, gestirnir frá Sauðrárkróki leiddu nánast allan leikhlutann og tveir þristar frá Emmu Katrínu Helgadóttur komu Tindastól í 70-78 og útlitið orðið svart fyrir heimakonur.

Njarðvík náði að minnka muninn í 80-84 og vinna svo boltann aftur með 40 sekúndur eftir af leiknum. Næsta sókn heimakvenna bauð upp á þrist frá Huldu Maríu sem skoppaði af hringnum og upp á spjald sem gestirnir vildu fá dæmt útaf. Svo var ekki og boltinn endaði í netinu og munurinn eitt stig, 83-84. Næsta sókn gestanna fór líka í vaskinn og lauk með hraðaupphlaupi Njarðvíkinga þar sem Dani kom Njarðvík í 85-84 með 3,9 sekúndur eftir af leiknum. Gestirnir tóku leikhlé og hófu svo sókn á varnarhelmingi Njarðvíkinga. Maddie fékk boltann, komst á körfuna, skoraði og fékk villu að auki og staðan 85-86 fyrir Tindastól. Eftir athugun ákváðu dómarar leiksins að 1,2 sekúndur væru til leiksloka.

Maddie hélt á vítalínuna með 1,2 sekúndur eftir af leiknum og miðað við skotið hennar var ljóst að hún ætlaði sér að brenna af skotinu til að keyra tímann út og koma í veg fyrir að Njarðvík næði almennilegu lokaskoti. Svo illa vildi nú til að boltinn endaði samt sem áður ofan í hjá Maddie af vítalínunni og þá gátu Njarðvíkingar tekið leikhlé tveimur stigum undir með 1,2 sekúndur eftir af leiknum.

Njarðvíkingar tóku því innkast á varnarhelmingi Tindastóls, Hulda María þolinmóð á hliðarlínunni með boltann, kom honum í hendurnar á Dinkins sem setti á loft fallega Maríubæn og niður vildi boltinn, lokatölur 88-87 og Njarðvík í undanúrslit. Magnað skot sem uppskar réttilega mikinn fögnuð Njarðvíkinga í leikslok.

Dinkins lauk leik með 31 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar, Dani bætti við 25 stigum, 10 fráköstum og 6 stoðsendingum. Hjá Tindastól var Maddie með 29 stig, 11 fráköst og 3 stoðsendingar og Oceane bætti við 20 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum. Marta náði sér ekki almennilega á strik í stigaskorinu með 9 stig.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -