spot_img
HomeFréttirFlaggskipið sigraði ÍR-b á Jakanum

Flaggskipið sigraði ÍR-b á Jakanum

Vestri-b, oft kennt við Flaggskipið, vann sinn annan sigur í röð er það lagði Pance Ilievski og lærisveina hans í ÍR-b í 3. deild karla í dag.

Pance, sem er spilandi þjálfari ÍR-b, lék á annan áratug fyrir vestan og voru því miklir fagnaðarfundir fyrir leikinn enda lék hann með flestum leikmönnum Flaggskipsins á einhverjum tímapunkti á síðastliðnum áratug.

ÍR-ingar mættu vel stemmdir til leiks og skoruðu 8 fyrstu stig leiksins. Heimamenn komu þó sterkir til baka og skoruðu 22 af næstu 29 stigum leiksins. Mátti halda að Vestramenn teldu að björninn væri unninn á þessum tímapunkti og eftirleikurinn auðveldur því þeir fóru í algjöra slökun í vörn og sókn næstu mínúturnar. ÍR-ingar gengu hressilega á bragðið því ekki nóg með að þeir skoruðu síðustu 4 stig fyrsta leikhluta þá skoruðu þeir 13 fyrstu stig annars leikhluta, eða 17 ósvöruð stig í röð. Mest náðu ÍR 12 stiga forustu, 22-34, áður en heimamenn komust loksins á blað þegar 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik.  Náðu þeir að laga muninn talsvert og var staðan 32-37 í hálfleik.

Pance Ilievski leggur sínum mönnum línurnar. Mynd: Guðjón Már Þorsteinsson

Annan leikinn í röð þurfti Birgir Örn Birgisson, þjálfari Vestra-b, að beita hárþurrku aðferðinni í hálfleik til að vekja menn sína af væru blundi og annan leikinn í röð virkaði það einstaklega vel því Flaggskipið lokaði algjörlega á skyttur ÍR-inga í seinni hálfleik. Vestramenn kláruðu svo þriðja leikhluta á 13-2 áhlaupi, þar af 10 stig frá Gunnlaugi Gunnlaugssyni, og náðu forustunni aftur.

Í fjórða leikhluta reyndu gestirnir að skjóta sig inn í leikinn frá þriggja stiga línunni en varð lítið ágengt og að lokum uppskar Flaggskipið sanngjarnan 67-58 sigur.

Eftir leikinn er ÍR í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig eftir 10 leiki en Vestri er í því sjötta með 10 stig eftir 11 leiki.  Hvert lið leikur 14 leiki í heildina og fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni um sigur í deildinni og sæti í 2. deild.

Vestri-b

Gunnlaugur Gunnlaugsson 21 stig, Guðmundur A. Gunnarsson 18 stig, Helgi Bergsteinsson 14 stig, Jóhann Jakob Friðriksson 5 stig, Rúnar Ingi Guðmundsson 4 stig, Stígur Berg Sophusson 3 stig, Birgir Örn Birgisson 2 stig

ÍR-b

Jón Orri Kristinsson 21 stig, Tómas Aron Viggósson 17 stig, Pance Ilievski 11 stig, Helgi Hrafn Ólafsson 6 stig, Guðmundur Óli Björgvinsson 3 stig

Fréttir
- Auglýsing -