HomeNeðri deildir1. deild karlaFlæðisvilla og háskavilla: Ný íslensk heiti á villutegundum í körfuknattleik

Flæðisvilla og háskavilla: Ný íslensk heiti á villutegundum í körfuknattleik

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur kynnt ný íslensk heiti yfir tvær nýjar villur eftir að óíþróttamannslegri villu var skipt upp í tvo flokka: disruptive foul og flagrant foul. Eftir kalli sambandsins til almennings og hreyfingarinnar valdi dómarasamtökin heitin flæðisvilla og háskavilla sem þóttu lýsa brotunum best.  

Hannes Birgir Hjálmarsson og Vala Steinsdóttir stungu upp á flæðisvillunni, en uppástungan að háskavillu kom frá þeim Björgvini Inga Ólafssyni, Henning Haraldssyni, Jóni Emil Halldórssyni, Óskari Páli Elfarssyni og Indriða Grétarssyni. Kristinn Óskarsson fór yfir áherslurnar sem fylgja hvorri villutegund fyrir sig og má sjá útskýringarmyndband hans hér.

Fréttir
- Auglýsing -