Aga- og úrskurðanefnd KKí hefur komist að niðurstöðu í nokkrum málum sem henni bárust til úrlausna.
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Í þeim málum sem ná til meistaraflokka er um að ræða sektir á þjálfara og leikmenn liða fyrstu og Bónus deilda karla. Hér fyrir neðan má sjá hverjir það voru sem voru sektaðir, en hæsta sektina fær Ricardo Gonzales þjálfari Þórs Akureyri í fyrstu deild karla, 50 þúsund krónur, fyrir 8 tæknivillur.
Agamál 134/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 135/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Ricardo Gonzales þjálfari Þórs Ak., sæta 50 þúsund króna sekt vegna 8 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 136/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Jordan Semple leikmaður Grindavíkur, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 137/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Emil Barja þjálfari Hauka, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.




