HomeFréttirFjórði sigurinn í röð hjá U16 drengja: Mörðu Kýpur í spennuleik

Fjórði sigurinn í röð hjá U16 drengja: Mörðu Kýpur í spennuleik

Íslenska U16 ára landslið drengja í körfuknattleik tryggði sér sinn fjórða sigur í B-riðli Evrópumótsins í Makedóníu þegar liðið lagði Kýpur að velli, 61-58.

Leikurinn var gífurlega jafn og spennandi allt til leiksloka þar sem forystan skipti um hendur ellefu sinnum og liðin voru jöfn átta sinnum á meðan leik stóð.

Kýpur byrjaði leikinn af miklum krafti og leiddi 14-12 eftir fyrsta leikhluta. Íslensku strákarnir svöruðu vel í öðrum leikhluta og náðu eins stigs forskoti fyrir hálfleik, 33-34. Jafnræði var með liðunum allt fram í lokafjórðunginn þar sem íslenska liðið sýndi mikla seiglu, hélt mótherjum sínum í aðeins 8 stigum á lokakaflanum og knúði fram dýrmætan þriggja stiga sigur.

Davíð Breki Antonsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig en hann hitti úr fjórum þriggja stiga skotum í leiknum. Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sömuleiðis frábæran dag, skoraði 11 stig og tók 11 fráköst, og var því með tvöfalda tvennu. Sindri Logason skilaði 10 stigum og Jón Breki Sigurðarson bætti við 9 stigum ásamt því að taka 7 fráköst og verja 3 skot.

Baráttan á frákastasvæðinu var lykilatriði í sigrinum en Ísland tók samtals 45 fráköst gegn 37 fráköstum Kýpverja. Þrátt fyrir að talsvert væri um tapaða bolta hjá báðum liðum tókst lærisveinum Dino Stipcic að landa sigri með öflugri varnarvinnu á lokamínútunum.

Með þessum sigri heldur Ísland áfram fullkomnu gengi á mótinu með fjóra sigra í eins mörgum leikjum. Lokaleikur liðsins í B-riðli fer fram á morgun, þriðjudaginn 11. ágúst, þegar strákarnir mæta öflugu liði Króatíu.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -