Fjölnismenn fengu að kenna á mætti Tindastóls í Domino´s deild karla í kvöld og var þeim drekkt snemma í Síkinu að þessu sinni. Lokatölur 103-83 þar sem heimamenn fóru langt með leikinn í fyrri hálfleik, 59-27. Tindastóll og KR eiga það því sammerkt þetta tímabilið að hafa unnið níu heimaleiki.
Helgi Rafn Viggósson og Darrell Flake skiluðu báðir tvennum í kvöld en það var Darrel Lewis sem var þó stigahæstur með 23 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Fjölni var Jonathan Mitchell með 26 stig og 7 fráköst.
„Heilt yfir var ég bara ánægður en við byrjuðum vel annan leikinn í röð sem er mjög jákvætt. Við byrjuðum seinni hálfleikinn hinsvegar illa og við verðum bara að passa það að klára leikina í gegn sama hver staðan er,“ sagði Pétur Rúnar Birgisson leikstjórnandi Tindastóls í samtali við Karfan.is í kvöld.
„Það er eins hjá okkur og öllum öðrum liðum, það vilja öll lið spila 40 mínútur með fulla einbeitingu og þetta er reynt út allar æfingar og tekið með í leiki,“ sagði Pétur sem er óðar að verða betri af náraveseni en það aftraði honum þó ekki frá því að skila af sér 9 stigum í kvöld, 8 stoðsendingum og 4 fráköstum.
Tindastóll hefur nú 26 stig í 2. sæti deildarinnar og þykja ekki líklegir til að gefa það eftir á meðan Fjölnismenn eru í fallsæti, því ellefta, með 8 stig en ÍR hefur betur þar innbyrðis og er því laust við fall sem stendur en við skulum hafa hugfast að enn eru 10 stig eftir í pottinum.
Mynd/ Hjalti Árnason – Menn þurftu ekki mikið að æsa sig á bekk Tindastóls í kvöld þar sem grunnur að sigri heimamanna var lagður snemma leiks.




