Fjölnismenn mættu tilbúnir og rúmlega það því þeir náðu strax afgerandi forustu og skoruðu fyrstu 13 stig leiksins áður en Maurice Miller náði að svara fyrir gestina. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður höfðu þeir náð 16 stiga forskoti, 23-7 og Bárður tók leikhlé fyrir Tindastól. Það lifnaði heldur betur yfir sóknarleik gestana eftir leikhléið og þeir höfðu skorað 8 stig á næstu tveimur mínútum. Munurinn minnkaði þó lítið og þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta höfðu heimamenn 15 stiga forskot, 36-21. Nathan Walkup fór fyrir heimamönnum og hafði sett 12 stig á fyrstu 10 mínútum leiksins. Igor Tratnik var að spila sinn fyrsta leik fyrir Tindastól eftir umdeild skipti frá Val. Igor var hins vegar fagnað vel af stuðningsmönnum Tindastóls þegar hann skoraði sín fyrstu stig fyrir félagið.
Fjölnismenn héldu áfram á fljúgandi siglingu í sókninni í öðrum leikhluta og höfðu náð muninum upp í 20 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar, 44-24. Örvar Kristjánsson, þjálfari Fjölnis, tók leikhlé stuttu seinna en þá munaði ennþá 20 stigum á liðunum. Fjölnismenn sýndu oft á köflum snilldartakta í snöggum sóknarleik sínum og klaufagangur Tindastóls hjálpaði ekki málstað þeirra en þeir fór illa með hvert dauðafærið á fætur öðru, hvort sem það var undir körfunni eða opið skot. Þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik tók Bárður leikhlé fyrir Tindastól, 51-31. Gestunum tókst lítið að minnka muninn en þeir áttu þó seinasta skot leiksins og minnkuðu þar muninn niður í 18 stig, 55-37.
Stigahæstur fyrir Fjölni í hálfleik var Nathan Walkup með 14 stig en næstir voru Arnþór Guðmundsson með 12 stig og Jón Sverrisson með 10 stig. Hjá Tindastól voru Svavar Birgisson og Þröstur Leó Jóhannsson stigahæstir með 8 stig hvor en næstir voru Curtis Allen með 7 stig og Igor Tratnik með 6 stig.
Fjölnismenn hægðu mikið á sínum leik í þriðja leikhluta og fyrir vikið gekk þeim ekki jafn vel að finna göt í varnarleik Tindastóls. Sem fyrr þá tókst Tindastól ekki að nýta þetta og þegar fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum tók Bárður leikhlé fyrir Tindastól, 64-45. Þegar leið á leikhlutan fór þó að lifna yfir Tindastól og varnarleikurinn þeirra fór að skila sér. Það munaði 14 stigum á liðunum þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja, 68-54. Örvar tók svo leikhlé stuttu seinna þegar Þröstur Leó setti flottan þrist á heimamenn, 72-57. Tindastóll gjörbreytti leiknum á stuttum tíma undir lok þriðja leikhluta en munurinn á liðunum var kominn niður í 10 stig, 74-64 áður en Calvin O’Neal náði að svara fyrir Fjölni með seinustu stigum leikhlutans, 76-64.
Það dugði þó ekki til að slá Fjölnismenn útaf laginu því þeir skoruðu fyrstu 5 stig fjórða leikhluta og höfðu náð 17 stiga forskoti aftur strax eftir rúmlega mínútu í fjórða. Tindastóll svaraði því fljótt og liðin skiptust á að ráða ferðinni. Tindastóll hafði minnkað muninn niður í 12 stig þegar fjórar mínútur voru liðnar og leikurinn ennþá galopinn. Fjölnismenn áttu hins vegar nóg inni og voru fljótir að svara fyrir sig og þegar þrjár mínútur voru eftir var munurinn kominn aftur upp í 18 stig og leikurinn algjörlega í stjórn heimamanna, 98-80. Fjölnismenn léku svo á alls oddi seinustu mínúturnar og tróð Nathan Walkup með látum þegar rúm mínúta var eftir við mikinn fögnuð Fjölnismanna og kom þeim í 23 stiga forskot, 105-82. Leikurinn leystist upp á lokamínútunni þar sem úrslitin voru löngu ráðin. Fjölnir hafði á endanum glæsilegan 19 stiga sigur, 106-87.
Myndasafn úr leiknum eftir Björn Ingvarsson
Umfjöllun: [email protected]
Mynd: Björn Ingvarsson



