Fjölnir varð í dag VÍS bikarmeistari í 9. flokki drengja eftir sigur á ÍA í úrslitaleik í Smáranum.
Leikurinn var sá fyrsti af þremur á þessum lokadegi VÍS bikarvikunnar.
Fyrir leik
Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði ÍA lagt Breiðablik með 7 stigum í undanúrslitum á meðan Fjölnir vann Ármann með 41 stigi í sinni undanúrslitaviðureign.
Í deildarkeppni 9. flokks eru Fjölnir jafnir Breiðablik að stigum í efsta sæti deildarinnar með 10 sigra í 11 leikjum. ÍA er hinsvegar skráðu ekki lið í deildarkeppni 9. flokks, eru bara með í bikarkeppninni. Samkvæmt heimildum Körfunnar mun það vera vegna þess að leikmenn 9. flokks æfa flestir og spila með 10. og 11. flokkum félagsins.




Gangur leiks
Eins og í góðum hnefaleikabardaga þreifa liðin fyrir sér á fyrstu mínútunum án þess að taka of miklar áhættur á að fá áhlaup á sig. Eftir því sem líður á fyrsta fjórðunginn hraðast þó leikar og skiptast liðin á körfum í jöfnum og spennandi leikhluta sem endar þó með því að Fjölnir er tveimur stigum yfir, 18-20.
Leikurinn er í nokkru jafnvægi í öðrum leikhlutanum. Fjölnir allan tímann á undan, en þó sjaldnast nema einni eða tveimur körfum og eru munurinn fjögur stig í hálfleik, 29-33. Fjölnisdrengir höfðu hótað því að fara með forskot sitt enn lengra á lokamínútum fyrri hálfleiksins og mátti ÍA telja sig heppið að hafa komið í veg fyrir það og haft bilið aðeins þessi 4 stig þegar liðin héldu til búningsherbergja.
Víkingur Eldon Arnarsson átti stórgóðan leik fyrir Fjölni í fyrri hálfleiknum og var kominn með 14 stig á meðan Pétur Steinn Gunnarsson var kominn með 11 stig fyrir ÍA.
Áfram haldast leikar nokkuð jafnir í upphafi seinni hálfleiksins. Virtist þó vera dálítið að skoppa af hringnum hjá ÍA og Fjölnir nýtti sér það til að komast mest 8 stigum yfir í þriðja fjórðungnum. Leikmaður þeirra Óttar Ingimar með nokkrar virkilega góðar körfur í fjórðungnum. Skagamenn missa þá eilítið frá sér fyrir lok leikhlutans, en staðan fyrir þann fjórða er 47-59.
Fjölnisdrengir voru komnir í nokkur villuvandræði í upphafi lokaleikhlutans, þar sem nokkrir af þeirra lykilleikmönnum voru komnir með þrjár og fjórar villur. Það kom þó ekki að sök, þar sem þeir náðu hægt og rólega að auka við forskot sitt svo að þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka var munurinn kominn í 17 stig, 55-72. Eftirleikurinn að er virtist einfaldur fyrir Fjölni sem vinna leikinn að lokum nokkuð örugglega, 66-78.
Stigahæstir
Besti leikmaður úrslitaleiksins var Óttar Ingimar Davíðsson með 28 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar. Honum næstur í liði Fjölnis var Víkingur Eldon með 19 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.
Fyrir ÍA voru atkvæðamestir Pétur Steinn Gunnarsson og Ísleifur Gísli Jóhannsson. Pétur Steinn með 28 stig, 7 fráköst og Ísleifur með 22 stig og 9 fráköst.









ÍA 9.fl.dr.: Pétur Steinn Gunnarsson 28/7 fráköst, Ísleifur Gísli Jòhannsson 22/9 fráköst, Smári Njálsson 7/5 fráköst, Elmar Snorrason 5, Andri vidar Arnarsson 3, Grétar Ingi Gunnarsson 1, Ernir Kristvinsson 0, Baltasar Loki Arnarsson 0, Vikingur Thor Ellertsson 0, Òlafur Dòr Bjarkason 0, Arnar Òli Sigurjònsson 0.
Fjölnir 9.fl.dr.: Ottar Ingimar Davidsson 28/12 fráköst/9 stoðsendingar/3 varin skot, Víkingur Eldon Arnarsson 19/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Eiríkur Hákonarson 12/9 fráköst, Ólafur Thorarensen 12/4 fráköst, Jónatan Montoro 5, Sveinn Guðmann Magnússon 2, Ægir Leví Fjeldsted Elmarsson 0, Logi Karl Steindorsson Steindorsson 0, Óskar Már Sigurðsson 0, Ari Þór Höskuldsson 0, Jón Björn Margrétarsson 0, Hamprey Orven Reyes Ramirez 0.




